Laufásgata 4 - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir bílastæði

Málsnúmer 2023020502

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 397. fundur - 01.03.2023

Erindi dagsett 10. febrúar 2023 þar sem Hafnasamlag Norðurlands sækir um framkvæmdaleyfi fyrir bílastæði fyrir langferðabifreiðar á lóð nr. 4 við Laufásgötu.

Meðfylgjandi er greinargerð.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.


Skipulagsráð leggur áherslu á að öryggi gangandi vegfarenda á svæðinu verði sett í forgang, m.a. með því að ökutækjum verði ekki bakkað úr stæðum ef kostur er.