Brekkugata 14 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023011557

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 902. fundur - 09.02.2023

Erindi dagsett 30. janúar 2023 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Berglindar Bjarkar Jónsdóttur sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi rishæðar ásamt endurnýjun á þakuppbyggingu í húsi nr. 14 við Brekkugötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.