Hulduholt 31 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2023011072

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 395. fundur - 25.01.2023

Erindi Ágústs Hafsteinssonar arkitekts dagsett 5. janúar 2023 f.h. lóðarhafa Hulduholts 31 þar sem sótt er um stækkun byggingarreits um allt að 0,8 m til suðurs og hækkun nýtingarhlutfalls úr 0,5 í 0,62 vegna útfærslu B rýma (opin útirými undir þaki/skyggni). Meðfylgjandi er tillöguuppdráttur.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.