Sólskógar - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2023010320

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 395. fundur - 25.01.2023

Erindi dagsett 6. janúar 2023 þar sem Ingvar Ívarsson f.h. Sólskóga ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir Sólskóga í Kjarnaskógi. Fyrirhugað er að stækka lóð og ræktunarsvæði. Meðfylgjandi er uppdráttur.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna.

Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.