Hafnarstræti - umsókn um langtímaleyfi fyrir pylsuvagn

Málsnúmer 2022121081

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 900. fundur - 26.01.2023

Erindi dagsett 27. desember 2022 þar sem Thomas Piotr ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagn í Hafnarstræti eins og verið hefur síðustu ár. Meðfylgjandi er mynd af vagninum og staðsetningu.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 31. desember 2023 með fyrirvara um að skilað verði inn starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

Umsækjandi skal hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar vegna tenginga og kostnaðar við frárennsli, vatn og rafmagn fyrir söluvagninn.

Minnt er á ákvæði í 6. grein samþykktar Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu um afturköllun stöðuleyfis ef samfellt rof myndast á sölustarfsemi í meira en 90 daga.