Ráðhústorg - umsókn um langtímaleyfi fyrir söluvagn Moe''s

Málsnúmer 2022120942

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 900. fundur - 26.01.2023

Erindi dagsett 21. desember 2022 þar sem MF ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagn við Ráðhústorg eins og verið hefur síðustu ár. Meðfylgjandi eru skýringarmyndir.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 31. desember 2023 með fyrirvara um að skilað verði inn starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

Umsækjandi skal hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar vegna tenginga og kostnaðar við frárennsli, vatn og rafmagn fyrir söluvagninn.

Minnt er á ákvæði í 6. grein samþykktar Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu um afturköllun stöðuleyfis ef samfellt rof myndast á sölustarfsemi í meira en 90 daga.