N4 - boð um þátttöku í eflingu fjölmiðlunar af svæðinu

Málsnúmer 2022120932

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3793. fundur - 05.01.2023

Erindi dagsett 9. desember 2022 frá Maríu Björk Ingvadóttur f.h. N4 þar sem sveitarfélögum á Norðurlandi eystra er boðið til viðræðna um að efla fjölmiðlun frá svæðinu.

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar gott boð og góða umfjöllun um svæðið en getur ekki orðið við erindinu að þessu sinni.