Eyrarlandstún FSA B-álma, 3. hæð - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2022120550

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 895. fundur - 22.12.2022

Erindi dagsett 13. desember 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sjúkrahússins á Akureyri sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi Sjúkrahússins við Eyrarlandstún. Óskað er eftir leyfi til að innrétta 3. hæð tengibyggingar B-álmu fyrir skrifstofur og kennslurými. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.