Flugeldasala - umsókn um skilti

Málsnúmer 2022120128

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 895. fundur - 22.12.2022

Erindi dagsett 4. desember 2022 þar sem Steingrímur Hannesson fyrir hönd Björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri sækir um leyfi til að setja upp skilti víðs vegar um bæinn vegna flugeldasölu sveitarinnar. Tímabilið frá 27. desember til og með 31. desember árin 2022, 2023 og 2024 og einnig tímabilið 4. janúar til 6. janúar árin 2023, 2024 og 2025. Að auki er sótt um leyfi fyrir 2 skilti vegna netsölu sveitarinnar frá 20. desember til 31. desember árin 2022, 2023 og 2024.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.