Byggðavegur 141 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2022111491

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 892. fundur - 01.12.2022

Erindi dagsett 28. nóvember 2022 þar sem Rósa Guðjónsdóttir sækir um úrtak úr kantsteini við hús nr. 141 við Byggðaveg. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 3,5 metra úrtaki í kantstein sunnan megin við hús með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum úr kantsteini og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.