Hafnarstræti - umsókn um langtímaleyfi fyrir söluvagn

Málsnúmer 2022110144

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 900. fundur - 26.01.2023

Erindi dagsett 3. nóvember 2022 þar sem Lasagna and more ehf. sækir um langtímaleyfi fyrir söluvagn við Hafnarstræti.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 31. desember 2023 með fyrirvara um að skilað verði inn starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

Umsækjandi skal hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar vegna tenginga og kostnaðar við frárennsli, vatn og rafmagn fyrir söluvagninn.

Minnt er á ákvæði í 6. grein samþykktar Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu um afturköllun stöðuleyfis ef samfellt rof myndast á sölustarfsemi í meira en 90 daga.