Skólastígur - umsókn um langtímaleyfi fyrir pylsuvagn

Málsnúmer 2022110057

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 894. fundur - 15.12.2022

Erindi dagsett 1. nóvember 2022 þar sem Ingólfur Albert Þorsteinsson fyrir hönd Víkinga pylsa ehf. sækir um langtímaleyfi fyrir pylsuvagn við Sundlaug Akureyrar.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 31. desember 2023.

Umsækjandi skal hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar vegna tenginga og kostnaðar við frárennsli, vatn og rafmagn fyrir söluvagninn.

Minnt er á ákvæði í 6. grein samþykktar Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu um afturköllun stöðuleyfis ef samfellt rof myndast á sölustarfsemi í meira en 90 daga.