Upptökur af bæjarstjórnarfundum

Málsnúmer 2022070347

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3779. fundur - 01.09.2022

Lagt fram minnisblað ásamt verk- og kröfulýsingu varðandi upptökur bæjarstjórnarfunda fyrir tímabilið september 2022 til desember 2024. Verðkönnun var auglýst 10. ágúst sl. með tilboðsfresti til 24. ágúst og bárust tvö tilboð.

Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir tilboð Eyrarlands og felur forstöðumanni þjónustu og þróunar að ganga frá samningi við fyrirtækið um upptökur á fundum bæjarstjórnar.