Oddeyrargata 3 - umsókn um niðurrif og endurbyggingu á geymsluskúr

Málsnúmer 2022070261

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 872. fundur - 14.07.2022

Erindi dagsett 7. júlí 2022 þar sem Jón Þór Sigurðsson sækir um niðurrif á geymsluskúr á lóð nr. 3 við Oddeyrargötu þar sem áætlað er að endurbyggja hann.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. mannvirkjalaga.