Jaðar - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2022060562

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 384. fundur - 06.07.2022

Erindi Haraldar Sigmars Árnasonar dagsett 10. júní 2022 f.h. Golfklúbbsins Jaðars þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi fyrir Jaðarsvöll. Fyrirhuguð er stækkun byggingarreits vestan við núverandi klúbbhús.

Meðfylgjandi er skipulagsuppdráttur.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.