Aðalstræti 13 - fyrirspurn varðandi byggingu bílgeymslu og stækkun lóðar

Málsnúmer 2022060306

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 383. fundur - 15.06.2022

Erindi dagsett 3. júní 2022 þar sem Stefán Þór Jósefsson leggur inn fyrirspurn varðandi byggingu bílgeymslu og stækkun lóðar nr. 13 við Aðalstræti. Bílgeymsla er fyrirhuguð 36 m², 6 m á breidd, 7 m á lengd, byggð úr timbri á steyptum grunni með tvíhalla þaki. Bílgeymslan yrði staðsett á lóðarmörkum. Óskað er eftir lóðarstækkun að botnlanga.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu og felur skipulagsfulltrúa að afla frekari gagna.