Brekkugata 1B - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum, verslun og samkomustaður

Málsnúmer 2022051459

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 865. fundur - 27.05.2022

Erindi dagsett 24. maí 2022 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Muga sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1B við Brekkugötu. Fyrirhugað er að koma fyrir þakglugga á suðurhlið og á 1. hæð innrétta verslun og samkomusal. Við aðalinngang verður komið fyrir rampi með handriði.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.