Dalsbraut 1 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gáma

Málsnúmer 2022051258

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 865. fundur - 27.05.2022

Erindi dagsett 20. maí 2022 þar sem Knattspyrnufélag Akureyrar óskar eftir leyfi til að færa gáma sem eru á Akureyrarvelli á endurnýjaðan gervigrasvöll á svæði KA á meðan á uppbyggingu stendur. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.