Þingvallastræti 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022050151

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 862. fundur - 05.05.2022

Erindi dagsett 3. maí 2022 þar sem Ívar Hauksson sækir um byggingarheimild fyrir húsi nr. 31 við Þingvallastræti. Húsið verður klætt að utan með bárujárnsklæðningu og gluggum skipt út. Að innan eru allar lagnir endurnýjaðar ásamt minniháttar breytingum á burðarvirki hússins.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.