Lyngholt 11 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2022042524

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 861. fundur - 28.04.2022

Erindi dagsett 21. apríl 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson sækir um leyfi til að breyta bílastæði við hús nr. 11 við Lyngholt.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.


Jafnframt skal afleggja úrtak á norðvestur lóðamörkum lóðarinnar.