Uppbyggingaráform við Hólabraut, Gránufélagsgötu og Geislagötu

Málsnúmer 2022042343

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 380. fundur - 20.04.2022

Björn Ómar Sigurðsson hjá BB Byggingum ehf. og Haraldur S. Árnason hjá H.S.Á. teiknistofu kynntu hugmyndir að uppbyggingu á svæði sem nær til Geislagötu 7, Gránufélagsgötu 4 og Hólabrautar 12 auk bílastæðis austan Brekkugötu 4-12.

Björn Ómar og Haraldur sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsráð þakkar fyrir kynninguna.

Ráðið tekur jákvætt í hugmyndir um uppbyggingu svæðisins og felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu.