Hafnarstræti - langtimaleyfi söluvagna 2022

Málsnúmer 2022042261

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 380. fundur - 20.04.2022

Umsóknarfrestur um langtímaleigustæði fyrir söluvagn í Hafnarstræti rann út þann 14. apríl sl. Tvær umsóknir bárust.
Skipulagsráð samþykkir að veita Raffaele Marino stöðuleyfi til 6 mánaða í Hafnarstræti fyrir matarvagn Lasagna and more.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.