Helgamagrastræti 11 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2022042126

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 861. fundur - 28.04.2022

Erindi dagsett 7. apríl 2022 þar sem Hlynur Halldórsson leggur inn umsókn um bílastæði á lóð sinni við hús nr. 11 við Helgamagrastræti. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.