Aðalstræti 10 - umsókn um rekstrarleyfisskylda gististarfsemi

Málsnúmer 2022021063

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 377. fundur - 09.03.2022

Erindi dagsett 22. febrúar 2022 þar sem Guðmundur Hallgrímsson leggur inn fyrirspurn varðandi breytta notkun í húsi nr. 10 við Aðalstræti. Umsækjandi á húsið í heild sinni og óskar eftir að fá gistileyfi II á efri og/eða neðri hæð hússins.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við að gefið verði út leyfi fyrir rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi í íbúðunum tveimur sem eru í húsinu ef þær eru leigðar út í heilu lagi. Með því móti eykst ekki álag á bílastæði í götunni.

Afgreiðslu málsins er vísað til byggingarfulltrúa.
Fylgiskjöl: