Verðandi - listsjóður

Málsnúmer 2022020562

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3759. fundur - 17.02.2022

Lagt fram til samþykktar endurnýjað samkomulag sem og vinnureglur um listsjóðinn Verðandi. Sjóðurinn er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélags Akureyrar og Menningarfélagsins Hofs og geta einstaklingar og hópar sem starfa utan menningarstofnana sótt um styrk í sjóðinn til að standa fyrir viðburðum í Menningarhúsinu Hofi. Bæjarráð skipar einn fulltrúa í úthlutunarnefnd.

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samkomulag og vinnureglur um listsjóðinn Verðanda og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið fyrir hönd bæjarins. Bæjarráð skipar Huldu Sif Hermannsdóttur í úthlutunarnefndina.