Molta ehf. - forkaupsréttur að eignarhlutum

Málsnúmer 2022011647

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3757. fundur - 03.02.2022

Erindi dagsett 25. janúar 2022 þar sem Kristján Ólafsson f.h. Moltu ehf. tilkynnir um fyrirhuguð kaup Fjárfestingafélagsins Urða ehf. í eignarhlut Tækifæris ehf. í Moltu ehf. Óskað er eftir að Akureyrarbær taki afstöðu til þess hvort bærinn hyggist nýta sér forkaupsrétt að ofangreindum hlut.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir með fimm samhljóða atkvæðum að nýta ekki forkaupsréttinn.