Skólastígur - umsókn um langtímaleyfi, pylsuvagn

Málsnúmer 2022011529

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 851. fundur - 10.02.2022

Erindi dagsett 27. janúar 2022 þar sem GA Samvirkni ehf. sækir um áframhaldandi stöðuleyfi fyrir pylsuvagn við Sundlaug Akureyrar við Skólastíg. Meðfylgjandi er starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 31. desember 2022.


Umsækjandi skal hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar vegna tenginga og kostnaðar við frárennsli, vatn og rafmagn fyrir söluvagninn.


Minnt er á ákvæði í 6. grein samþykktar Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu um afturköllun stöðuleyfis ef samfellt rof myndast á sölustarfsemi í meira en 90 daga.