Hafnarstræti - umsókn um langtímaleyfi fyrir söluvagn

Málsnúmer 2022011097

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 377. fundur - 09.03.2022

Erindi dagsett 24. febrúar 2022 þar sem Lasagna and more ehf. leggur fram andmæli við ákvörðun skipulagsráðs frá 23. febrúar sl. um uppsögn forleiguréttar fyrir söluvagn í Hafnarstræti.

Meðfylgjandi er andmælabréf.
Skipulagsráð fellst ekki á andmæli umsækjanda og synjar umsókn hans um langtímastöðuleyfi fyrir árið 2022.

Skipulagsfulltrúa er falið að auglýsa stæðið laust til úthlutunar að nýju.