Áfangastaðastofa Norðurlands - þjónustusamningur við SSNE

Málsnúmer 2021111076

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3757. fundur - 03.02.2022

Lögð fram drög að samningi SSNE og Akureyrarbæjar vegna áfangastaðastofu. Samningurinn kemur í stað samnings vegna Markaðsstofu Norðurlands.

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samninginn með fimm samhljóða atkvæðum.