Hofsbót 2 - umsókn um leyfi fyrir niðurrifi

Málsnúmer 2021100534

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 835. fundur - 14.10.2021

Erindi dagsett 8. október 2021 þar sem Ketill Sigurður Jóelsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um leyfi til niðurrifs húss nr. 2 við Hofsbót. Meðfylgjandi er áætlun um meðhöndlun úrgangs, tilkynning til vinnueftirlits og samþykki heilbrigðiseftirlits.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. mannvirkjalaga.