Hvannavellir 14 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021080723

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 827. fundur - 19.08.2021

Erindi dagsett 17. ágúst 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Reita skrifstofa ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 14 við Hvannavelli. Fyrirhugað er að stækka verslunarrými á 1. hæð og stækka glugga á vesturhlið. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.