Beiðni um laugarpláss fyrir æfingar veturinn 2021 - 2022

Málsnúmer 2021080406

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 98. fundur - 18.08.2021

Erindi dagsett 21. júní 2021 frá formanni Sundfélagsins Óðins þar sem óskað er eftir fleiri tímum í sundlaugum Akureyrarbæjar fyrir æfingar veturinn 2021 - 2022.

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála, Pálína Dagný Guðnadóttir starfandi forstöðumaður sundlauga og Geir Kristinn Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi ÍBA sátu fundinn undir þessum lið.
Frístundaráð samþykkir erindi sundfélagsins er varðar aukna tíma fyrir utan það sem snýr að innilauginni og felur forstöðumanni að útfæra breytingarnar.