Hlíðarfjallsvegur 11 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 2021070555

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 822. fundur - 15.07.2021

Erindi dagsett 9. júlí 2021 frá Sunnu Axelsdóttur þar sem hún fyrir hönd Hjólreiðafélags Akureyrar (HFA) sækir um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám til geymslu fyrir búnað í eigu HFA á svæði Bílaklúbbs Akureyrar. Meðfylgjandi er mynd af fyrirhugaðri staðsetningu gáms ásamt samþykki stjórnar Bílaklúbbs Akureyrar.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.