Ægisgata 23 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2021061369

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 819. fundur - 24.06.2021

Erindi dagsett 16. júní 2021 þar sem Friðný Björg Sigurðardóttir sækir um leyfi fyrir hönd Sigurðar Pálmasonar til að útbúa bílastæði á lóð nr. 23 við Ægisgötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 3 metra úrtaki í kantsteini með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantsteini og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.