Kotárgerði 22 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2021060329

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 862. fundur - 05.05.2022

Erindi dagsett 4. júní 2021 þar sem Áslaug Ágústa Magnúsdóttir sækir um breikkun á núverandi úrtaki fyrir bílastæði til suðurs við hús nr. 22 í Kotárgerði til að mæta nýrri aðkeyrslu í bílskúr á lóðinni. Innkomin ný gögn 2. maí 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði samkvæmt meðfylgjandi teikningu og úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.