Jaðarsíða 2 - fyrirspurn til skipulagssviðs um stækkun lóðar

Málsnúmer 2021050830

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 359. fundur - 26.05.2021

Erindi dagsett 18. maí 2021 þar sem Ómar Björgvinsson óskar eftir að fá stækkun á lóðinni Jaðarsíðu 2 til NA þar sem á að koma gangstígur skv. skipulagi. Meðfylgjandi er samþykki meðeiganda í lóð.
Skipulagsráð heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi þegar umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs liggur fyrir. Breytingin verði unnin í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.