Grundargerði 7E - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2021050705

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 815. fundur - 27.05.2021

Erindi dagsett 17. maí 2021 þar sem Sólrún Hauksdóttir sækir um leyfi til að útbúa bílastæði við Grundargerði 7E. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda lóðar.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 3ja metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.