Álfabyggð 12 - umsókn um úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2021050704

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 815. fundur - 27.05.2021

Erindi dagsett 17. maí 2021 þar sem Hermann Herbertsson sækir um úrtak úr kantsteini við hús nr. 12 við Álfabyggð.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með að hámarki 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.