Aðalstræti 22 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna breyttrar notkunar

Málsnúmer 2021050627

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 814. fundur - 21.05.2021

Erindi dagsett 15. maí 2021 þar sem Marta Volina sendir inn fyrirspurn um leyfi fyrir breyttri notkun í hluta húss nr. 22 við Aðalstræti. Útbúin hefur verið snyrtistofa í hluta 01-02.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Skipulagsráð - 359. fundur - 26.05.2021

Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindi dagsett 15. maí 2021 þar sem Marta Volina sækir um leyfi fyrir breyttri notkun í hluta húss nr. 22 við Aðalstræti. Útbúin hefur verið snyrtistofa í hluta 01-02.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við tímabundna breytingu vegna starfsemi snyrtistofu. Byggingarfulltrúi afgreiðir umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.