Strandgata 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á inngangi á austurhlið

Málsnúmer 2021050604

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 814. fundur - 21.05.2021

Erindi dagsett 14. maí 2021 þar sem Gunnar Guðnason fyrir hönd Landsbankans sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 1 við Strandgötu. Fyrirhugað er að breyta inngangi á austurhlið, setja upp hringhurð og gönguhurð/flóttahurð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gunnar Guðnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.