Ásabyggð 17 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2021050465

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 814. fundur - 21.05.2021

Erindi dagsett 11. maí 2021 þar sem Kári Einarsson sækir um leyfi til að útbúa tvö bílastæði á lóð við hús sitt nr. 17 við Ásabyggð og í framhaldi úrtak úr kantsteini. Meðfylgjandi er skýringarmynd og samþykki meðeiganda í lóð.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.