Aðalstræti 54 - umsókn um byggingarleyfi fyrir stoðvegg

Málsnúmer 2021050014

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 813. fundur - 07.05.2021

Erindi dagsett 30. apríl 2021 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir steyptum stoðvegg við aðkomu að Nonnahúsi á lóðinni nr. 54 við Aðalstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Meðfylgjandi er samþykki nágranna.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.