Brekkugata 3B - fyrirspurn vegna reksturs veitingahúss

Málsnúmer 2021041239

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 358. fundur - 12.05.2021

Erindi dagsett 26. apríl 2021 þar sem Einar Hannesson leggur inn fyrirspurn varðandi mögulegan rekstur veitinga- og/eða skemmtistaðar í húsi nr. 3B við Brekkugötu.
Brekkugata 3B er á miðsvæði samkvæmt aðalskipulagi þar sem heimilt er að vera með rekstur í samræmi við fyrirspurn. Starfsemin gæti þó haft áhrif á nærliggjandi umhverfi og því telur ráðið að áður en leyfi yrði gefið út þyrfti að kynna umsóknina fyrir næstu nágrönnum.