Hríseyjargata 22 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2021040028

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 813. fundur - 07.05.2021

Erindi dagsett 31. mars 2021 þar sem Júlía Þrastardóttir óskar eftir lengra úrtaki fyrir bílastæði við hús nr. 22 við Hríseyjargötu í ljósi framkvæmda Norðurorku og Akureyrarbæjar í götunni.
Byggingarfulltrúi hafnar erindinu með vísun í verklagsreglur Akureyrarbæjar um úrtök í kantsteina þar sem fyrir eru við lóðina eitt 4 m úrtak frá Hríseyjargötu og annað sambærilegt frá Eyrarvegi.