Strandgata 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021020815

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 805. fundur - 11.03.2021

Erindi dagsett 17. febrúar 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Vesturkants ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 31 við Strandgötu. Fyrirhugað er að bæta við tveimur gluggum á norðurhlið. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomin umsögn slökkviliðs 24. febrúar 2021 og samþykki nágranna 3. mars 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.