Furuvellir 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021020315

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 802. fundur - 18.02.2021

Erindi dagsett 5. febrúar 2021 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Ormsson ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á eignarmörkum og veggjum sem því fylgir í húsi nr. 5 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.