Til samráðs - drög að stefnu um félags- og tómstundastarf

Málsnúmer 2021020290

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 90. fundur - 10.02.2021

Mennta- og menningarmálaráðuneytið er að vinna að gerð stefnu um félags- og tómstundastarf. Drög að stefnunni lögð fram til kynningar ásamt athugasemdum frá Akureyrarbæ sem send voru inn á samráðsgátt stjórnvalda.

Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarnamála, Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður tómstundamála og Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála sátu fundinn undir þessum lið.