Hjalteyrargata 20 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021011891

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 800. fundur - 05.02.2021

Erindi dagsett 28. janúar 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Slippsins Akureyri ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi 2. hæðar ásamt tæknirými á 3. hæð á lóð nr. 20 við Hjalteyrargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 803. fundur - 25.02.2021

Erindi dagsett 28. janúar 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Slippsins Akureyri ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi 2. hæðar ásamt tæknirými á 3. hæð á lóð nr. 20 við Hjalteyrargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon. Innkomnar nýjar teikningar og gögn 15. febrúar 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 906. fundur - 09.03.2023

Erindi dagsett 6. mars 2023 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Slippsins Akureyri ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir atvinnumannvirki á lóð nr. 20 við Hjalteyrargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.