Byggðavegur 88 - umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun svala

Málsnúmer 2021011389

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 799. fundur - 28.01.2021

Erindi dagsett 20. janúar 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Leonards Birgissonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 88 við Byggðaveg. Fyrirhugað er að endurbyggja og stækka svalir.

Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon og samþykki meðeigenda í húsinu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Minnt er á að gera þarf breytingu á eignaskiptasamningi vegna stækkunar svala áður en lokaúttekt verður gerð.