Þórunnarstræti 119 - umsókn um gæludýrasnyrtingu

Málsnúmer 2021011324

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 800. fundur - 05.02.2021

Erindi dagsett 19. janúar 2021 þar sem Lilja Guðmundsdóttir sækir um leyfi til að vera með gæludýrasnyrtingu í bílskúr á lóðinni nr. 119 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi er umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Leyfið gildir eingöngu meðan umsækjandi er eigandi bílgeymslunnar.